Quartzite borðplötur

Quartzite er gífurlega fallegur steinn frá náttúrunnar hendi þar sem litaúrvalið er endalaust. Það sem er einstakt við quartzite er stórkostlegt útlit steinsins. Náttúrulegar æðar og mynstur steinsins gefur honum mikla dýpt. Í raun má segja að quartzite hafi karakter einkenni marmara hvað útlit varðar. Quartzite er hins vegar án þeirra áskorana sem marmaranum fylgir en efnið er mjög harðgert og slitsterkt.
Efnið er hægt að fá pólerað, mattslípað og með leðuráferð.

Við getum sérpantað fyrir þig það efni sem þig dreymir um. Við hvetjum þig til að vera í sambandi við okkur og fá að sjá fleiri tegundir og aðstoð við val á efni.

  • Náttúrusteinn

    Quartzite er náttúrusteinn sem finnst á mörgum stöðum í heiminum en við fáum okkar stein frá Ítalíu. Quartzite er harðgert og slitsterkt en þar sem um náttúrustein er að ræða mælum við eindregið með því að verja hann einu sinni á ári.

  • Hitaþolið

    Quartzite er hitaþolið efni, upp að ca 200 gráðum. Það er hægt að setja heita potta, pönnur og eldföst mót beint á plötuna án þess að þurfa að hafa áhyggjur.

  • Rispast ekki

    Yfirborð quartzite er gífurlega slitsterkt. Það má til að mynda skera beint á plötunni án þess að hún rispist.

Belvedere

Nilo

Madeirus

Victoria

Taj Mahal

Mont Blanc

White Pearl

Fusion platinum

Bianco Macaubas

Infinity

Double black

Super White Calacatta

Cristallo Del Mare

Glacier Tesla

Grand Constantine

Steinlausnir notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.

Privacy Settings saved!
Friðhelgisstillingar

Við notum vafrakökur til að skrá upplifun viðskiptavina okkar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.

Vafrakökurnar hér að neðan eru nauðsynlegar svo vefurinn starfi eðlilega.

Þessi vafrakaka vistar stillingar notandans varðandi samþykki á vafrakökum á steinlausnir.is • CookieConsent

Þessar kökur eru hluti af WordPress kerfinu.

  • wordpress_test_cookie
  • wordpress_logged_in_
  • wordpress_sec

Decline all Services
Accept all Services