Quartzite er gífurlega fallegur steinn frá náttúrunnar hendi þar sem litaúrvalið er endalaust. Það sem er einstakt við quartzite er stórkostlegt útlit steinsins. Náttúrulegar æðar og mynstur steinsins gefur honum mikla dýpt. Í raun má segja að quartzite hafi karakter einkenni marmara hvað útlit varðar. Quartzite er hins vegar án þeirra áskorana sem marmaranum fylgir en efnið er mjög harðgert og slitsterkt. Efnið er hægt að fá pólerað, mattslípað og með leðuráferð.
Við getum sérpantað fyrir þig það efni sem þig dreymir um. Við hvetjum þig til að vera í sambandi við okkur og fá að sjá fleiri tegundir og aðstoð við val á efni.
Quartzite er náttúrusteinn sem finnst á mörgum stöðum í heiminum en við fáum okkar stein frá Ítalíu.
Quartzite er harðgert og slitsterkt en þar sem um náttúrustein er að ræða mælum við eindregið með því að verja hann einu sinni á ári.
Hitaþolið
Quartzite er hitaþolið efni, upp að ca 200 gráðum. Það er hægt að setja heita potta, pönnur og eldföst mót beint á plötuna án þess að þurfa að hafa áhyggjur.
Rispast ekki
Yfirborð quartzite er gífurlega slitsterkt. Það má til að mynda skera beint á plötunni án þess að hún rispist.
Belvedere
Nilo
Madeirus
Victoria
Taj Mahal
Mont Blanc
White Pearl
Fusion platinum
Bianco Macaubas
Infinity
Double black
Super White Calacatta
Cristallo Del Mare
Glacier Tesla
Grand Constantine
Steinlausnir notar vafrakökur til að bæta upplifun og greina umferð um vefinn.
Við notum vafrakökur til að skrá upplifun viðskiptavina okkar svo við getum betur komið til móts við þá. Hér getur þú með einföldum hætti haft áhrif á þá virkni.