
Quartz er eitt endingarbesta og þrifalegasta efni sem hægt er að fá fyrir eldhús. Efnið, sem er manngert, er um það bil 95% quartz mulningur sem pressaður er saman við resin. Þetta gerir það að verkum að quartz borðplötur eru algjörlega gegnheilar, bletta- og viðhaldsfríar. Gegnheilt yfirborðið gerir það að verkum að einstaklega auðvelt er að þrífa borðplötuna. Quartz býður upp okkur upp á gríðarlegt úrval lita og fjölbreytilegt mynstur. Við getum sérpantað fyrir þig það efni sem þig dreymir um. Við hvetjum þig til að vera í sambandi við okkur og fá að sjá fleiri tegundir og aðstoð við val á efni.
Eiginleikar
Viðhaldsfrítt
Quartz borðplötur eru algjörlega viðhaldsfríar. Gegnheilt yfirborð quartz gerir það að verkum að ekki þarf að verja efnið.
Blettafrítt
Quartz borðplötur hafa gegnheilt yfirborð sem gerir það að verkum að steinninn dregur ekki í sig vökva. Borðplatan mun því haldast blettafrí.
Rispast ekki
Yfirborð quartz er gífurlega slitsterkt. Það má því til að mynda skera beint á borðplötunni án þess að hún rispist.